Music - Að leggjast á hraðbrautina

April 23, 2021 • 00:48:55
Music - Að leggjast á hraðbrautina
Fílalag
Music - Að leggjast á hraðbrautina

Apr 23 2021 | 00:48:55

/

Show Notes

Madonna - Music

„Popp" er hart orð. Það eru þrjú pé í því og það brotnar á vörum manns. Popp er líka harður business. Líklega sá allra harðasti. Popp fær fólk til að lita á sér hárið, klæðast þröngum buxum, syngja í falsettum, dilla rassinum, öskra eins og apar, taka pillur, fara í málaferli við fjölskyldumeðlimi og bara almennt smána sig síendurtekið. Popp er svo harður húsbóndi að þegar þú ert búinn að poppast ertu sprungin blaðra, ömurlegt gúmmírusl útí horni eftir barnaafmæli.

Og enginn getur stjórnað poppi. Það er ómögulegt að vita hvað verður vinsælt. Það er ómögulegt að þóknast poppinu, fjöldanum, og miskunnarleysi hans. En það er hægt að eiga sín móment, og enginn í sögu poppsins, hefur átt jafn mörg slík móment og Meyjan.

Madonna var kölluð drottning poppsins. En í raun er hún meira en það. Því hún náði nokkrum sinnum að lyfta keyri sínu og svipuhöggva sjálft poppið til hlýðni. Og ekkert nær betur utan um þennan aga, þennan fókus, og þessa drottnun heldur en síðasta lag Madonnu sem náði toppi Billboard Hot 100 listans. En það er lagið Music. Þar fer Madonna alla leið og hreinlega leggst á sjálfa hraðbrautina og lætur tortímandi 18-hjóla trukkana, sem allir gætu hæglega grandað henni, keyra framhjá sér. Hún leggst á hraðbrautina og klárar dæmið.

Other Episodes

Episode

February 10, 2017 • 01:01:51
Episode Cover

Losing My Relegion – Remkex

Hvað getur maður sagt um R.E.M? Eitt mesta cross-over band allra tíma. Fór frá því að vera þunglyndismúsík fyrir holuhassreykjandi lopapeysulið frá Portland, Oregon...

Listen

Episode

December 06, 2019 • 00:51:08
Episode Cover

Only Shallow – Háheiðinn, þjóðsögulegur en iðnvæddur rafmulningur

My Bloody Valentine – Only Shallow Ímyndið ykkur ef að innan í jörðinni sjálfri væri stórt tómarúm. Það væri hægt að taka lyftu niður...

Listen

Episode

October 20, 2017 • 00:49:24
Episode Cover

Handle With Care – Mesta stemmning sögunnar

Leggjum á borð. Hvað er í matinn? Soðinn Bítill, kryddaður með Roy Orbison, eldaður af Jeff Lynne úr ELO, borinn fram með Bob Dylan...

Listen