Radiohead - Exit Music (For a Film)
Himininn yfir París. Þrútið var loft og þungur sjór. Tæring þess tærasta.
Annó erótíka. Þú ert steindautt lík við vegarkantinn. Blóði litað blóm.
Júlía leggur hníf að hjarta sínu. Lokuð augu Rómeós. Farðu burt, burtu frá mér. Ég er eitur.
Manga-teiknimynda aflitun. Rúmdýna fyrir ofan Salatbar Eika. Close-mækuð endurköstun af arinstæði vofunnar á Herragarðinum.
Andrúmsloftið er 78% köfnunarefni. Á bílskúrssölu í Bristol er lokið upp kistu með hjarta hjartans. Poncho-kúreki ríður inn í appelsínugult sólsetrið.
My Heart Will Go On (Love Theme from Titanic) - Celine Dion Blómabúðalykt. Orð sem voru hvísluð svo lágt að þau aldrei heyrðust. Unglingaherbergið...
America - Sister Golden Hair Sjöan. Hraun. Teppi. Sértrúarsöfnuðir. Fyrstu bylgju hugbúnaðarfrumkvöðlar. Gyllta hárið. Heisið. Loftið. Þyngslin. Gula geðrofið. Buxna-bulge. Kjallarinn í botlanganum. Þurrt...
Fyrsta plata Spice Girls hét Spice og hún var nákvæmlega það: krydd. Og ekkert venjulegt krydd heldur napalm-karrí-lyftiduft. Kryddpíurnar sprengdu upp veröldina, og eins...