The Smashing Pumpkins - 1979
Lífið er endalaust. Fyndinn 16 ára gaur djögglar snakkpokum inn í flúorljósum 10-11, tvær stelpur hlæja en meira að honum en með honum. Lífið er endalaust, orkan er endalaus, hláturinn hættir aldrei. En dauðinn er nærri, dauðinn er inn í okkur og með okkur og það er daðrið við dauðann sem býr til völdin og það eru völdin sem búa til peningana og daðrið var þarna allan tímann í bliki unglinga-augna.
Duran Duran – Rio Gestófíll: Gunnar “Taylor” Hansson Núna hellum við okkur út í þetta. Takið fram mittissíðu smókingjakkana með uppbrettu ermarnar, blásið hárið,...
Amy Winehouse - Love is a Losing Game Hún varð aldrei gömul. Samt var rödd hennar djúp og vitur. Djass-þjáning úr fimmunni, soul-titringur úr...
T.Rex – Get it On Útvíðar buxur. Fílingur. Allt er stemning. Að dansa við jólatréð er stemning. Að láta renna í bað er stemning....