Enya - Only Time
Hver þekkir vegi himinsins? Fuglinn. Hver veit hvert vindurinn mun blása? Fuglinn. Hver býr yfir grimmd grameðlu og sakleysi páskaungans? Aðeins fuglinn.
Hver hratt af stað iðnbyltingunni? Keltinn. Hvert er leynihráefnið í rokk og ról? Keltinn. Hver skynjar tímann sem leiftur? Aðeins keltinn.
Peningar. Hollywood. Kastalar. Brún augu í þokunni, hrjóstrug heiðin, barnaskari í álfakletti. Himininn. Vindurinn. Leiftrið. Fuglinn. Keltinn.
Daft Punk - Da Funk Endurtekningin. Lífsleiðinn. Gljáinn. Feimnin, friggðin, nostalgían. Jökullinn hopar. Evrópa ropar. Sykurpúðar, stúdíólúðar, Christian Dior blússur liggja eins og hráviði...
Bergur Ebbi og Snorri Helgason taka fyrir lagið Síðan hittumst við aftur í nýjasta þætti Fílalags. Sveitaballapopp var nafn á íslenskri tónlistarstefnu sem nú...
Músík er sameinandi afl sem spyr hvorki um stétt né stöðu. Þetta eru væmin orð, en þó alveg sönn. Jafnvel hörðustu rokkarar koma heim...