You’re So Vain – Kona lætur karlana heyra það

August 14, 2015 • 00:31:09
You’re So Vain – Kona lætur karlana heyra það
Fílalag
You’re So Vain – Kona lætur karlana heyra það

Aug 14 2015 | 00:31:09

/

Show Notes

Carly Simon gaf út lag sitt, You’re So Vain, árið 1972. „Hún er 27 ára þegar þetta lag kemur út en samt er þetta rosalegt uppgjör við fortíðina. Það er eins og hún hafi lifað margar ævir þó hún sé ekki eldri en þetta,“ segir Bergur Ebbi í þessum nýjasta þætti Fílalags þar sem þessi adult contemporary negla er maukfíluð. „Þetta er women-empowerment. Hún er að jafna sökina við alla páfuglana sem hún hefur umgengist í gegnum tíðina. Þetta lag er ekki bara um einhvern einn náunga heldur alla ríku sjálfskipuðu playerana í lífi hennar. Og það sem er best er að það er ekki vottur af biturð í laginu heldur hrein og ómenguð sigurvíma,“ bætir hann við.“

Þetta lag er náttúrulega frábær tónsmíð, snjall texti og góð útsetning en það sem stendur upp úr er hvorki versið né viðlagið heldur einmitt brúin þar á milli,“ segir Snorri Helgason en við þetta má bæta að það er almennt viðurkennt innan lagahöfundabransans að brúin í You’re So Vain sé ein voldugasta og kraftmesta brú tónlistarsögunnar og ekki kemur það að sök þó hún spanni aðeins örfá taktbil. „Krafturinn sem losnar úr læðingi í þessari brú er einfaldlega show-business’ finest. Þetta er kraftur sem jafngildir Hendrix að kveikja í gítarnum sínum nema þetta er miklu fagmannlegra og látlausara,“ bætir Snorri við til útskýringar.

Til að hlusta á 70s negluna You’re So Vain og hugmyndir Bergs Ebba og Snorra um hana skuluð þið smella hér:

Other Episodes

Episode

August 31, 2018 • 01:05:02
Episode Cover

Myth – Svifryk. Blóð. Brúnar krullur.

Nú er fjandinn laus. Fílalag er á nálægum slóðum. Í dag er lag úr indíkreðsunni frá 2012 tæklað. Það er Airwaves norpið. Það er...

Listen

Episode

August 12, 2017 • 00:55:21
Episode Cover

The Winner Takes It All (Live frá Húrra) – Sértrúarsöfnuður hlustar á Abba

Það var þétt setið á skemmtistaðnum Húrra í gær þegar Fílahjörðin kom þar saman, en fílahjörðin eru dyggustu hlustendur hlaðvarpsins Fílalag. Þetta var sértrúarsafnaðardæmi...

Listen

Episode 0

March 19, 2021 • 00:43:43
Episode Cover

Sk8er Boi - Halló litli villikötturinn minn

Avril Lavigne - Sk8er Boi Opnaðu ferska dós af tennisboltum (já, tennisboltar eru seldir í dósum og þær opnast með flipa eins og gosdósir...

Listen