The Rose - Sú sem sprakk út

April 10, 2020 • 00:59:14
The Rose - Sú sem sprakk út
Fílalag
The Rose - Sú sem sprakk út

Apr 10 2020 | 00:59:14

/

Show Notes

Bette Midler - The Rose

„Stóra systir mín var vön að sitja á gólfinu í herberginu sínu. Þetta var 1979 og nánast daglega setti hún 45 snúninga plötuna með Rósinni undir fóninn á plötuspilaranum frá Sears. Hún lést í fyrra, var 53 ára gömul. Maðurinn hennar og ég vorum að fara í gegnum dótið hennar og þá fann ég albúmið, umbúðirnar voru snjáðar, en 45 snúninga platan var í hulstrinu sínu. [...] 30 sekúndum síðar heyrðist í tveimur fullorðnum mönnum snökta hljóðlega, þar sem þeir sátu í bílskúrnum. Hví í friði Dawn."

Textinn hér fyrir ofan er þýðing á einu af efstu kommentunum sem finna má undir einni af útgáfum lagsins The Rose með Bette Midler, á youtube. Kommentið var sett inn árið 2019 af notandanum: SouthOCmixdown. Efsta kommentið undir laginu, sett inn af Thea Lloyd, hljómar svona: „Konan mín lést skyndilega fyrir ári síðan. Við vorum gift í 45 ár. Þetta var uppáhalds lagið hennar og í sérhvert skipti sem ég heyri það, tætir það mig niður í öreindir."

Rósin er fíluð í dag. Þetta er saga Bette Midler. Þetta er saga konunnar sem söng fyrir hommana í sánunni þegar enginn annar vildi vita neitt af þeim vita. Þetta er saga konunnar sem gafst aldrei upp, sem hélt áfram að gefa af sér áratugum saman. Þetta er saga þeirrar sem sprakk út, fékk sviðið og söng fyrir allan heiminn.

Og í bílskúrnum gráta menn. Í menkeivum gráta menn. Um allan heim. Hommarnir í gufunni, unglingsstrákarnir, ekklarnir, verðbréfasalarnir og hinir venjulegu. Stelpurnar sem halda að enginn vilji sig, fólkið sem starir í spegilinn. Rósin sprakk út fyrir öll.

Other Episodes

Episode

December 30, 2019 • 01:03:42
Episode Cover

Love is a losing game – Djúpsteiktur loftsteinn af himnum

Amy Winehouse – Love is a Losing Game Hún varð aldrei gömul. Samt var rödd hennar djúp og vitur. Djass-þjáning úr fimmunni, soul-titringur úr...

Listen

Episode

October 16, 2015 • 01:03:21
Episode Cover

La Décadance – Mount Everest fegurðarinnar

Í nýjasta þætti Fílalags er fjallað um Serge Gainsbourg. Um hann þarf ekki að hafa mörg orð hér. Hann var einfaldlega fjallið eina. Tónlistarmaður...

Listen

Episode

January 13, 2017 • 01:23:17
Episode Cover

Down By The River – Stóri Ufsilón

Þá er komið að fílun á einni af burðarstólpum rokksins. Neil Young er tekinn fyrir í Fílalag í dag. Það er vaðið beint í...

Listen