Sk8er Boi - Halló litli villikötturinn minn

March 19, 2021 • 00:43:43
Sk8er Boi - Halló litli villikötturinn minn
Fílalag
Sk8er Boi - Halló litli villikötturinn minn

Mar 19 2021 | 00:43:43

/

Show Notes

Avril Lavigne - Sk8er Boi

Opnaðu ferska dós af tennisboltum (já, tennisboltar eru seldir í dósum og þær opnast með flipa eins og gosdósir og gefa frá sér "ttsss" hljóð). Dragðu djúpt andann og finndu ferskan ilm síðkapítalismans streyma ofan í dýpstu lungnarætur.

Farðu í Kringluna og rústaðu Kringlunni. Rústaðu líka kortinu þínu. Kauptu þig glaða, kauptu þig reiða, kauptu þig tjúllaða. Dressaðu þig upp í Converse All Star twisted hauskúpuhettupeysuheilablóðfall og leystu þig út með lími í Pennanum.

Áferð himinsins er kaþólskur skólabúningur með málningarslettum. Sjóndeildarhringurinn, verslunarmiðstöðvarbílastæðarampur. Verkefni þitt: gosselígoss.

Það er getnaðarvarnarpillu-pabbi-lemur-mig-aids-þáttur í sjónvarpinu um unglinga í gallajökkum á BMX hjólum með litla uppskjótanlega butterfly hnífa

Nuddaðu þér upp við Joe & the Juice tattú á upphandlegg lesblinds fucbois. Red Bull veitir vængi.

Other Episodes

Episode 0

February 07, 2020 • 01:07:51
Episode Cover

Born in the U.S.A. - Kældur, vaggandi skrokkur í BNA

Bruce Springsteen - Born in the U.S.A. Levis 501. Nestisbox úr stáli. M16 hríðskotariffill. Eldar loga. Miskunnsami samverjinn kveikir sér í sígarettu og askar...

Listen

Episode

April 12, 2019 • 00:55:38
Episode Cover

Final Countdown – Með sjóðheitan kjarnorkuúrgang í klofinu

Europe – The Final CountdownÞað var lokaniðurtalning í gamla Nýló salnum þegar hármetal-hesthúsið Europe var fílað í allri sinni dýrð, frammi fyrir fílahjörðinni. Tjúúúúú....

Listen

Episode

March 07, 2015 • 01:14:19
Episode Cover

Hefnófíl

Fílalag bauð Hefnendunum Hugleiki og Jóhanni Ævari í þátt sinn. Hefnendurnir yfirtóku þáttinn með nördamennsku sinni og fóru að rífast um endurgerðir á kanadískum...

Listen