Guiding Light – Ómenguð rockabilly þráhyggja

June 10, 2016 • 00:44:32
Guiding Light – Ómenguð rockabilly þráhyggja
Fílalag
Guiding Light – Ómenguð rockabilly þráhyggja

Jun 10 2016 | 00:44:32

/

Show Notes

Hvað gera Bandaríkjamenn ef að bíll selst vel? Þeir framleiða meira af honum? Hvað þýðir að framleiða meira af honum? Framleiða fleiri eintök en líka að láta vera meira í hverju eintaki.

Stærri vél, fleiri hestöfl, fleiri glasahaldarar, stærri stuðarar, dekkri rúður, þykkari leðurinnrétting o.s.frv. Þetta er saga amerískrar neyslumenningar og þetta er líka saga rokksins.

Rokk sló í gegn. Það seldist vel. Perlulagðir telecasterar, Ray Ban Wayfarer sólgleraugu, támjóir skór og brilljantín er einn mesti best-seller Bandaríkjanna. Rokk var keypt upp til agna. Fólk fílaði það á sínum tíma.

Og hvert er lógískt framhald þess? Jú, að framleiða meira af því. Fleiri listamenn, fleiri plötur og meira rokk. Meiri leðurjakkar, meira gítarsurg, þrengri buxur. En hvar endar sú pæling?

Rokkið hefur verið tekið út í hverskonar öfgar í gegnum tíðina, en þessi grunnhugsun – að ýkja upp sjálft extract rokksins út í hið óendanlega – er löngu orðið að listrænum metnaði. Það er fyrirbæri sem við getum kallað „rockabilly þráhyggjuna“.

Þetta hefur verið gert í allskonar formum í gegnum tíðina. ZZ Top (hot rods, bensínstöðvar, leður) Leningrad Cowboys (támjóir skór, rockabilly bartar) The Romantics (leður, dinerar).

Svo er hægt að taka rokk-þráhyggjuna svo langt að lífið er hætt að snúast um nokkuð annað en að vera með sólgleraugu inni og smurstöðva-fitugt rockabilly hár.

„Guiding Light“ af plötunni „Life is Killing My Rock n’ Roll“ með íslensku hljómsveitinni Singapore Sling er fílað í dag.

Hlustið og fílið og þetta mun allt meika sens.

Other Episodes

Episode

July 07, 2017 • 00:58:58
Episode Cover

Clubbed To Death – Orkudrykkir, bakpokar, misheppnuð ást á japönskum kúltúr

Líklegast átti það að vera orðaleikur þegar tónlistarmaðurinn Rob Dougan gaf lagi sínu nafnið „Clubbed To Death“. Orðasambandið þýðir í venjulegri merkinu: „að vera...

Listen

Episode

February 15, 2019 • 01:02:35
Episode Cover

Year of the Cat – Ofið teppi úr sjöunni

Al Stewart – Year of the Cat Þá er komið að einu hnausþykku. Hér er um að ræða twix rjómasúkkulaði þar sem karamellan mallar...

Listen

Episode

September 18, 2015 • 00:42:36
Episode Cover

Síðan hittumst við aftur – Helgi Björns og vatnstankurinn

Bergur Ebbi og Snorri Helgason taka fyrir lagið Síðan hittumst við aftur í nýjasta þætti Fílalags. Sveitaballapopp var nafn á íslenskri tónlistarstefnu sem nú...

Listen