First We Take Manhattan – Leonard Cohen, hryðjuverkamaður í ástum og listum

November 11, 2016 • 01:18:15
First We Take Manhattan –  Leonard Cohen, hryðjuverkamaður í ástum og listum
Fílalag
First We Take Manhattan – Leonard Cohen, hryðjuverkamaður í ástum og listum

Nov 11 2016 | 01:18:15

/

Show Notes

Skilaboð frá Fílalagsmönnum:

Það hafði lengi verið á stefnuskrá Fílalags að taka Leonard Cohen fyrir. Nú í vikunni létum við loks verða af því og tókum upp hefðbundinn þátt þar sem fjallað er um lagið First We Take Manhattan. Síðar í vikunni barst heimsbyggðinni sú reiðarfregn að Cohen væri látinn. Við sendum þáttinn út, eftir sem áður, og tileinkum hann minningu þessa mikla listamanns. Hafa skal það þó í huga þegar hlustað er á þáttinn, að hann var ekki hugsaður sem minningarþáttur heldur tribute til lifandi manns.

Leonard Cohen var af þeirri kynslóð tónlistarmanna sem braust út á 7. áratugnum. Þegar tónlist hafði mikil áhrif á samfélagið. Hann fór aldrei fremstur í flokki en hann kafaði dýpra en flestir aðrir og brúaði bil milli tónlistar og bókmennta, en ekki síður heimspeki og trúarspeki. Hann var existensíalískur í eðli sínu. Lífsskoðun hans var jafn skynjanleg í rödd hans, laglínum, texta, fraseringum, fatavali og framkomu í viðtölum. Hann var alhliða listamaður sem skapaði sína list með sjálfri tilverunni.

First We Take Manhattan er djúpt lag að kóenskum sið. Cohen gengur þó enn lengra en oft áður í að selja hugmynd sína. Lagið fjallar um terrorisma í víðum skilningi. Að gera ekki málamiðlanir. Heimsyfirráð eða dauði. Allt fyrir listina. Allt fyrir ástina. Þannig lifði Montreal-mörðurinn alla sína tíð. Salute. Hvíl í friði, prins ljóðs og rökkurs.

Þess óska, þínir aðdáendur, Bergur Ebbi og Snorri

Other Episodes

Episode

August 23, 2019 • 00:51:29
Episode Cover

Some Velvet Morning – Poseidon og leðurstígvélakvendið

Nú er það áferð. Lagið sem fílað er í dag hefur sömu áferð og ef feldur af jarðíkorna væri tekinn, honum dýft ofan í...

Listen

Episode 0

May 04, 2018 • 00:59:26
Episode Cover

Sunny way - Kjallarinn á Þórscafé

Gestófíll: Ari Eldjárn Það er febrúar 1974. Við erum stödd í iðnaðarhverfi austan megin við Hlemm í Reykjavík. Hrafn kroppar í prins póló umbúðir...

Listen

Episode

January 08, 2016 • 01:00:44
Episode Cover

Alright -Kálfum hleypt út

Eitt sterkasta afl í heiminum nefnist ungæði. Þrátt fyrir ýmsar fregnir af öðru þá elskar ungt fólk yfirleitt lífið því þegar maður er ungur...

Listen