Alright -Kálfum hleypt út

January 08, 2016 • 01:00:44
Alright -Kálfum hleypt út
Fílalag
Alright -Kálfum hleypt út

Jan 08 2016 | 01:00:44

/

Show Notes

Eitt sterkasta afl í heiminum nefnist ungæði.

Þrátt fyrir ýmsar fregnir af öðru þá elskar ungt fólk yfirleitt lífið því þegar maður er ungur hefur maður ekki áhyggjur af því að vera gamall.

Að vera gamall er bara eitthvað sem gamalt fólk gerir. Þetta virkar einfeldningslegt og þess vegna er ungæði svona áhrifamikið.

Hljómsveitin Supergrass var kapítalíseruð á nákvæmlega þessu: ungæðinu. Bæði voru hljómsveitarmeðlimirnir sjálfir mjög meðvitaðir um að þeir væru ungir og að lífið væri skemmtilegt en svo var líka fólk í kringum þá sem vissi að þannig ætti að kynna þá fyrir heiminum.

Í laginu Alright, sem er fílað í dag, kemur þetta allt svo skilmerkilega fram. Lífið er einfalt þegar maður er ungur. Maður þarf ekki að eiga stórt hús eða flottan bíl eða þekkja merkilegt fólk.

Eins og skáldið Gaz Coombes orti: „We wake up, we go out, smoke a fag, put it out / See our friends, see the sights, feel alright.“

Búið ykkur undir svakalega föstudagsræsingu.

Vorið kemur snemma í ár.

Búið ykkur undir að sjá kálfunum hleypt út.

Other Episodes

Episode

September 05, 2025 • 01:46:19
Episode Cover

Hotel California - Ernir. Síðari hluti. Vængir bráðna.

Eagles – Hotel California Lagið sem er fílað í dag ætti með réttu að vera síðasta lag sem Fílalag tekur fyrir (engar áhyggjur, það...

Listen

Episode

April 15, 2016 • 00:32:45
Episode Cover

Wicked Game – Ljóti leikurinn

Árið er 1990. Rockabilly endurvakning ríður röftum í Los Angeles. David Lynch er að dúndra út skrítnum kvikmyndum með sætum krökkum og 50s músík....

Listen

Episode

June 16, 2017 • 00:52:52
Episode Cover

If You Leave Me Now – Djúp Sjöa

Í dag kafar Fílalag dýpra ofan í Sjöuna en nokkurn tíman áður. Farið er ofan í læstar hirslur úr dánarbúi Ingólfs í Heimsferðum og...

Listen