In The Air Tonight – Farið í ullarsokka og fyllið munninn af húbba búbba

October 02, 2015 • 00:34:00
In The Air Tonight –  Farið í ullarsokka og fyllið munninn af húbba búbba
Fílalag
In The Air Tonight – Farið í ullarsokka og fyllið munninn af húbba búbba

Oct 02 2015 | 00:34:00

/

Show Notes

„Við höfum margoft verið beðnir um að fíla „In the Air Tonight“ með Phil Collins,“ segir Bergur Ebbi í nýjasta þætti Fílalags þar sem orðið var við þeirri beiðni. „Það er soldið eins og að biðja mann um að draga andann. Það er eiginlega of sjálfsagt til að maður geti einbeitt sér að því,“ segir Snorri Helgason. „Ég meina hvað eigum við að gera? Sitja hérna í hálftíma og tala um hvað við fílum þetta lag mikið. Ókei. En það er ekki eins og við séum að uppgötva úraníum hérna. Þetta er einfaldlega auðfílanlegasta lag sem við höfum glímt við. Þetta lag er bara ein fjögurra mínútna fílun. Ekkert annað. Það er lítið sem við getum gert annað en að hlýða,“ bætir hann við.

„Ég hef lítið við hlustendur að segja annað en að setja sig í stellingar. Það eru margar aðferðir notaðar þegar hlustað er á þetta lag. Sumir keyra bílinn sinn á 180 kílómetra hraða og sjúga upp í nefið á meðan. Það er algeng aðferð. Aðrir slökkva ljósin í herberginu og fara í hnipur á gólfið og míga pínulítið í sig. Sjálfum finnst mér best að fara í ullarsokka og setja tvo pakka af húbba búbba upp í mig og bara láta þetta koma, fearless,“ segir Bergur Ebbi. „Sammála þessu,“ segir Snorri. „Ég hef einmitt oft notað þessa tyggjóaðferð en yfirleitt fer ég í blauta krepsokka og stappa fótunum niður í hægum en öruggum takti til að halda sönsum á meðan ég hlusta,“ segir hann.

Hlýðið hér á Fílalagsbræður stjarf-fíla þessa 1981-neglu Phils sem sló tóninn fyrir þeirri geðbilun sem þessi frábæri tónlistaráratugur átti eftir að reiða fram.

Other Episodes

Episode

April 05, 2024 • 01:27:19
Episode Cover

Heaven on their Minds - Stóru samskeytin

Carl Anderson og Jesus Christ Superstar leikhópurinn - Heaven on their Minds Sólbruni. Tímasprengja. Páskar. Heilaga landið. Gallabuxur. Aktivismi. Oflæti. Broadway. Hamas. Bringuhár. Langferðabílar....

Listen

Episode

December 31, 2025 • 00:54:28
Episode Cover

Movin' on Up - Öskur úr iðrum jarðar

Primal Scream – Movin’ on Up Það er gott í vændum á nýju ári. Seiðkarlinn hrærir í potti og dregur upp lukkulegan spádóm handa...

Listen

Episode 0

December 11, 2020 • 00:57:38
Episode Cover

Euphoria - Bugles, Dópamín, kerúbíni þenur lúður

Loreen - Euphoria Þríhöfða vöðvatröll stígur niður úr leikmyndageimskipi .Glussahljóð fyllir skálar eyrna. Fasteignasali í Reykjavík kaupir ljótan jakka í Sautján. Buglesi er sturtað...

Listen