Flowers – Glugginn
Gestófíll: Teitur Magnússon
Fílalag grefur í gullkistu sína að þessu sinni og töfrar fram eina af sínum fyrstu fílunum. Um er að ræða fílun á Glugganum með Flowers. Lagið er samið af Rúnari Gunnarssyni forsprakka Dáta og einum besta söngvara Íslandssögunnar og Þorsteini Eggertssyni frumrokkara og hirðskáldi sexu og sjöu. Alíslenskt lag, en þó nokkuð amerískt í hljómi, enda voru geysilega margar Wrigleys-stangir leðraðar niður að minturót við samningu og upptöku þess.
Glugginn felur í sér frumdaga íslensks kúls. Þegar menn eins og Jónas R. gengu um í pelsum og voru töff. Og fílun á laginu felur einnig í sér árdaga lagafílunar. Hér eru Ebbi og Snorri mættir, ásamt Teiti Magnússyni, sem hrærir í fjölskynjunarpotti sínum og galdrar fram ófyrirséðar hliðar Gluggans.
Stevie Wonder - Superstition Klístrugt tyggjó undir kirkjubekk í Tannhjólaborg U.S.A. Kælt kampavín á fjallatígrisfeldi. Brynvarðir leðurjakkar og Jésúskegg. Hugsuðurinn í hillunni. Fjallabaksleið úr...
Nico – These Days Bleiki pardusinn settur í hrærivél og stappaður niður í bleikt vax sem bráðnar í lavalampa sem varpar bjarma á kríthvít...
Ben E. King - Stand By Me Viltu vera konungur, en finnst of mikið vesen að gera uppreisn og drepa gamla kónginn? Viltu vera...